Þann 12. október næstkomandi hefst innleiðing á nýju komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins (EES). Innleiðing kerfisins mun hefjast á sama tíma í öllum Schengen-ríkjunum að Kýpur undanskildu, en gert er ráð fyrir að kerfið verði full innleitt á öllum ytri landamærum Schengen ríkjanna í mars 2026.