None
FR
Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision
[]
Allar fréttir
Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar RÚV, segir í aðsendri grein á Vísi að hans mati eigi að víkja Ísrael úr Eurovision tafarlaust. Greinina skrifar hann í eigin nafni, ekki nafni stjórnar. Útvarpsstjórar Norðurlanda funda í Reykjavík á næstu dögum um atkvæðagreiðslu sem fer fram í nóvember um áframhaldandi þátttöku Ísrael. Fulltrúi stjórnar Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, verður á fundinum í Reykjavík.