Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að smáríki eins og Ísland eigi að reka að mestu leyti eins og fyrirtæki, en þó með áherslu á samfélagslega þjónustu eins og gott heilbrigðiskerfi, öfluga menntun og greiðar samgöngur. Ástæðan er einna helst sú að ríkið er lítið og viðkvæmt og það þarf að horfa í hverja krónu og gæta þess að skattfé sé skynsamlega og vel varið.