Ef spá ofurtölvu Sky Sports rætist verður Arsenal Englandsmeistari annað árið í röð. Þá spáir hún því að Liverpool endi ofar en Manchester United og Chelsea og Tottenham taki stór stökk frá síðasta tímabili.