Tónlistarmaðurinn Jóhannes Patreksson, betur þekktur sem Jói Pé, og leikkonan Molly Carol Birna Mitchell eru að selja 101 fermetra eign að Miðhrauni 14 í Garðabæ. Um er að ræða skrifstofuhæð auk millilofts á annarri hæð og er ásett verð 49, 5 milljónir. Bannað er að búa í íbúðinni nema eigendur búi þar sjálfir ef brunavarnir eru fullnægjandi og engin börn á heimilinu. Þá er bannað að leigja út íbúðarýmið.