Jones fæddist í Edcecombe-sýslu í Norður-Karólínu 30. ágúst 1941 inn í mikla fjölskyldu lestarstarstarfsmanna og byrjaði ungur að vinna á lestarteinunum. Jones var einnig virkur í réttindabaráttu svartra á sjöunda áratugnum, var handtekinn af lögreglu fyrir þáttöku mótmælum og var tvívegis fyrir barðinu á árásum hvítra öfgamanna í Ku Klux Klan. Frumraun Jones á stóra skjánum var í blaxploitation-myndinni Together for Days (1972) og lék hann eftir það í þó nokkrum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Jones var hvað afkastamestur á áttunda áratugnum og undir loks hans fékk hann hlutverk bifvélavirkjans Cooter Davenport í gamanþáttunum Dukes of Hazzard. Jones var kjörinn þingmaður Demókrata fyrir Georgíu-ríki í fulltrúadeild Bandaríkjaþings árið 1988 og sat í embætti frá ársbyrjun 1989 til ársbyrjunar 1993.