None
FR
Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit
[]
Allar fréttir
Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins.