None
FR
Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo
[]
Allar fréttir
Sjá einnig: Köngulóarmaðurinn slær sögulegt metKöngulóarmannsæðið hefur haldið áfram síðustu vikuna, myndin halaði inn rúmum 380 milljónum dala á heimsvísu um helgina og trónir á toppnum yfir vinsælustu myndir heims.
Alls hefur kvikmyndin halað inn 1,67 milljarði dala, mun vafalaust fara yfir tvo milljarða dala næstu helgi og komast á topplistann yfir fimm aðsóknarmestu myndir sögunnar áður en langt um líður.
Ódysseifskviðan fór yfir milljarð dala-múrinn um helgina, hefur sankað að sér hálfum milljarði dala í Bandaríkjunum og 1,1 milljarði á heimsvísu.
Þar að auki hefur kvikmyndin ekki enn verið sýnd í Kína sem er næststærsti bíóhúsamarkaður heims.
Vinsældir kvikmyndanna tveggja hafa þó gert að verkum að aðrar myndir sem hafa verið frumsýndar nýverið hafa fallið í skuggann.