Ungur karlmaður neitaði að greiða fargjald í strætisvagni á leið 6 um klukkan 11 í morgun. Þegar vagnstjórinn vísaði honum út úr vagninum sló hann til vagnstjórans áður en hann fór út.