None
FR
Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast
[]
Allar fréttir
Skipuleggjendur Eclipse Festival á Hellissandi búast við því að fólksfjöldi þar muni tífaldast meðan á hátíðinni stendur. Þegar er búið að selja um þrjú þúsund miða til gesta frá 75 þjóðum, sem eru væntanlegir í vikunni. Hátíðin er fimm daga tónlistar- og upplifunarhátíð sem hefst á miðvikudaginn.