Gömul saga segir frá tveimur göngugörpum sem mættust á þröngri hengibrú. Hvorugur vildi víkja. Þeir töluðu hvor ofan í annan og deilan varð æ háværari. Þegar myrkur skall á urðu báðir að snúa við. Hvorugur komst leiðar sinnar.