None
FR
Kæra Epli, skilur þú mig?
['Lilja Dögg Jónsdóttir', 'Kristín Björnsdóttir', 'Dagur B. Eggertsson', 'Egill Almar Ágústsson', 'Guðjóna Eygló Friðriksdóttir', 'Már Másson', 'Steingrímur J. Sigfússon', 'Sveinn Óskar Sigurðsson', 'Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir', 'Ólafur Hannesson']
Allar fréttir
Í kjölfarið tók við baráttan um íslenskt viðmót í Office-umhverfi Microsoft, um íslenskar þýðingarvélar og tölvuraddir og nú síðast að tryggja að gervigreind, og þá einkum stór mállíkön, skilji og svari á íslensku og geri það vel. Eitt af okkar hlutverkum er einmitt þetta; að tryggja stafræna framtíð íslenskunnar með því byggja opin gagnasöfn og hugbúnað sem einfaldi erlendum tæknifyrirtækjum að innleiða íslensku og ekki síður að eiga í stöðugu samtali við hin erlendu fyrirtæki og minna á mikilvægi þess að framtíðin tali íslensku. Það er ekki bara af því að okkur er annt um varðveislu tungumálsins heldur líka af því að við viljum að Ísland njóti jafnra tækifæra og stærri lönd í yfirstandandi tæknibyltingu.