Finnskur dómstóll vísaði frá máli ákæruvaldsins á hendur þremur skipverjum olíuflutningaskips sem sleit fimm sæstrengi síðasta vetur á þeim forsendum að hann hefði ekki lögsögu í málinu. Skipið er talið hluti af svonefndum skuggaflota Rússa.