Magga Stína er mold í þessum jarðveg, hetjan sem hrópar, fyrst á vindinn, svo á himininn og heiminn og stjórnmálamennina okkar, sem verða þegar í stað að hætta að ræða opinberlega um stríðs og morðóðar skepnur eins og vitiborna menn með einhver áform önnur en þau sem eru sýnd daglega á símanum okkar, við getum ekki hlustað á þetta píp lengur, við verðurm að tala mannamál við hvort annað. Þið getið svo í leiðinni haft það í huga að sami hermálaráðherra breytti nafni varnarmálaráðuneytisins í hermálaráðuneytið, eða úr „ministry of defence“ í „ministry of war“ og hefur leyfi til að koma hingað með her sinn hvenær sem er og undir hvaða kringumstæðum sem er, ætli þögnin verði eins notaleg og áður ef það gerist.