Þetta endurspeglast í úthlutun styrkja þar sem árangurshlutfall hefur lækkað úr 23% árið 2022 niður í tæplega 17% árið 2025 og stefnir í enn lægra hlutfall í næstu úthlutun eins og fram kom í grein Ernu Magnúsdóttur og Stefáns Þórarins Sigurðssonar á Vísi þann 2. október sl. Í úttekt OECD (2023) um þetta kerfi er bent á að eftir­liti og eft­ir­fylgni með skattaendurgreiðslunum sé veru­lega ábóta­vant, skortur sé á gögnum og reglulegu eftirliti, og erfitt að leggja mat á árangur þessara styrkja hjá einstökum fyrirtækjum. Þeir hvetja til frekari rannsókna á samspili nýsköpunarstefnu og þróun nýsköpunar á Íslandi til að auka skilning á þeim aðstæðum sem eru til staðar hérlendis og til að byggja upp almenna þekkingu svo læra megi hvernig áhrif einstakar aðgerðir íslenskra stjórnvalda hafi.