None
FR
Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum
[]
Allar fréttir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill að Ísland sé ekki aðeins þátttakandi heldur gegni leiðandi hlutverki um þróun viðskipta og hvernig varnarmálum verði háttað á Norðurslóðum. Þjóðaröryggisráð kemur saman í dag til að ræða drónaárásir og aðrar fjölþáttaógnir en viðfangsefnið var fyrirferðarmikið á leiðtogafundi sem hún sótti í Danmörku í gær. Kristrún segist þó ekki aðeins hafa mætt til Kaupmannahafnar til að ræða varnarmál.