Auga hans fyrir smáatriðum í búningum og leikmynd spila þar stórt hlutverk en líka kvikmyndatakan þar sem hann er bæði duglegur að finna fallega ramma og halda myndavélinni á hreyfingu. Anderson er óhræddur við að vaða í stærstu átakamál samtímans í myndinni, framkomu bandarískra yfirvalda í garð innflytjenda sem koma til Bandaríkjanna í leit að betra lífi og uppgang hvítrar kynþáttahyggju meðal bandarískra fasista. Myndin nær hápunkti í bílaeltingaleik í eyðimörkinni þar sem farið er upp og niður hæðir en þar koma saman mögnuð myndataka, þéttur trommusláttur og góð klipping sem búa saman til kæfandi spennu.