None
FR
Hákon Arnar skoraði sigurmarkið en Özer stal fyrirsögninni
[]
Allar fréttir
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson skoraði sigurmark Lille þegar það sótti Roma heim til Rómarborgar í Evrópudeildinni í fótbolta. Berke Özer, markvörður Lille, stelur þó fyrirsögnunum víðast hvar en hann varði þrjár vítaspyrnur í leiknum og sá til þess að Lille er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.