Þjálfarinn Halldór Jón Sigurðsson hefur ákveðið að segja skilið við Tindastól, eftir að hafa stýrt fótboltaliðum félagsins í 200 leikjum í meistaraflokki. Ljóst er að spennandi tækifæri gæti beðið hans eftir frábæran árangur við erfiðar aðstæður.