None
FR
Erfitt að yfirgefa Þrótt en starfið hjá KSÍ of spennandi til að hafna því
[]
Allar fréttir
Fótboltaþjálfarinn Ólafur Kristjánsson færir sig um set í Laugardalnum eftir tímabilið. Hann hættir sem þjálfari kvennaliðs Þróttar og tekur við starfi aðstoðarþjálfara kvennalandsliðsins. Ólafur segir að það hafi verið erfitt að ákveða að hætta hjá Þrótti en starfið hjá KSÍ hafi verið of heillandi til að hafna því.