Í fréttatilkynningu frá Betri samgöngum segir að þau hafi boðið út brúarsmíðina á Evrópska efnahagssvæðinu í maí síðastliðnum. „Þess má geta að verksamningurinn fyrir sjóvarnir og landfyllingar fyrir Fossvogsbrú, sem gerður var í janúar síðastliðnum, var 70% af áætluðum verktakakostnaði,“ segir í tilkynningunni. Í janúar hófst fyrri hluti framkvæmda fyrir brúna í honum fólst gerð sjóvarna og landfyllinga á Kársnesi í Kópavogi og í Reykjavík.