None
FR
Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið
[]
Allar fréttir
Kælikerfi kjarnorkuversins í Sapórisjía í Úkraínu eru enn keyrð á ljósavélum, rúmri viku eftir að síðasta rafmagnslínan í kjarnorkuverið slitnaði. Yfirmaður Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (IAEA) segir ástandið alvarlegt og nauðsynlegt að tengja orkuverið aftur við stöðugt rafmagn til að draga úr hættunni á því að kjarnakljúfar orkuversins bræði úr sér, með tilheyrandi hamförum.