Hún tengdist líka rannsóknarvinnu við Um tímann og vatnið og óútgefið verk sem er í smíðum. Hún er komin út á 20 tungumálum og fékk meðal annars Philip K. Dick verðlaunin 2014 og Grand Prix l'Imaginaire verðlaunin í Frakklandi 2016 sem besta þýdda vísindaskáldsaga ársins. Hér er ekki talin upp þáttaka í Feneyjartvíæringnum með SAP arkítektum með Lavaforming 2025, skrif fyrir íslenska dansflokkinn, minnismerkið um Ok jökul, verkefni með Kronos Quartet í maí 2025, Yo Yo Ma verkefni í Hörpu haustið 2024 eða klukkutima sýningu sem ég gerði fyrir Schauspielhaus í Hamborg fyrir 2000 manns sumarið 2024 á vegum þýska vísinda og menntamálaráðuneytisins.