Í tilkynningu segir að herferðin sé tilnefnd í tveimur flokkum: Paid Media Campaign of the Year og Paid Social Campaign of the Year, fyrir það sem kallað er „Engaging Gamification for Brand Loyalty“ á vefsíðu verðlaunanna. Með þessari nálgun erum við jafnframt að styðja við þá langtímastefnu félagsins að styrkja í sífellu tengingu viðskiptavina við vörumerkið og veita þeim meira en aðeins hefðbundna þjónustu,“ segir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, markaðsstjóri Olís, í tilkynningu um verðlaunin. „Það er lærdómsríkt að skoða árangur herferðarinnar í alþjóðlegu samhengi þeirra sem hljóta tilnefningu til þessara verðlauna og gífurlega hvetjandi fyrir okkar vegferð að bæta sífellt við okkur þekkingu sem styrkir okkur í að skapa enn betri lausnir fyrir viðskiptavini okkar.“