None
FR
The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu
['The Ultimate Eagles Sýning']
Allar fréttir
Um er að ræða alþjóðlega tónleikasýningu sem hefur verið sýnd frammi fyrir meira en milljón manns á heimsvísu með mjög vel heppnuðum tónleikaferðalögum á Norðurlöndunum sem og víðar í Evrópu auk Ástralíu og Nýja Sjálandi. The Ultimate Eagles er orðið stórt og sjálfstætt nafn og meðlimir virtir og vel metnir af tónlistariðnaðinum og elskaðir af gríðarlega stórum aðdáendahópi. James Cundall eigandi Jamboree Entertainment segir að fyrirtækið vilji setja sér það markmið að koma með alþjóðlega tónlistarviðburði af hæstu gráðu til Íslands og er spenntur að undirbúa fleiri slíka viðburði í Hörpu á næsta ári sem verða kynntir á næstu mánuðum.