None
FR
Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe
[]
Allar fréttir
Skuldabréfaeigendur í Play keppast nú við að bjarga dótturfélagi flugfélagsins á Möltu með því að ná samningum á ný við flugvélaleigusala svo starfsemin geti haldið þar áfram. Í upptöku af starfsmannafundi dótturfélagsins á Möltu sem fréttastofu hefur undir höndum kemur fram að leigusalarnir hafi kippt að sér höndum við fall Play á Íslandi og staðan sé flókin.