None
FR
Veisla fyrir augu og eyru
['Símon Birgisson']
Allar fréttir
Það kom mér ekkert á óvart að áhorfendur voru með símann á lofti þegar maður gekk inn í stóra salinn í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Sviðsmyndin sem tekur á móti manni er glæsileg og lýsingin í salnum færir mann strax inn í heim Moulin Rouge. Svo hefst veislan og frá fyrstu mínútu er manni ljóst að hér er ekki um „hefðbundinn“ íslenskan söngleik að ræða. Þetta er sýning sem „hækkar ránna“ ef maður grípur til líkingamáls úr íþróttaheiminum, vettvangur fyrir fjöldann allan af listamönnum að sýna sig og sanna. Hvert íslenskt leikhús heldur héðan er svo önnur og stærri spurning.