None
FR
Ökumaðurinn próflaus og sex unglingar í bílnum
[]
mbl.is - Forsíðufréttir
Drengirnir þrír sem fluttir voru til aðhlynningar á slysadeild í kjölfar bílveltu í Ártúnsbrekku í Reykjavík laust fyrir hádegi í dag voru ekki alvarlega slasaðir og eru nú lausir af sjúkrahúsi. Sex einstaklingar voru í bílnum, allir undir 18 ára aldri og bílstjórinn ekki kominn með ökuréttindi.