Stefan Alexander Ljubicic upplifði blendnar tilfinningar á Laugardalsvelli í kvöld. Hann skoraði mark í 4:0-sigri Keflavíkur gegn HK í úrslitum umspilsins í 1. deildinni og fagnaði sæti í Bestu deildinni fyrir vikið. Hann fór hins vegar meiddur af velli skömmu eftir að hann skoraði.